
Sólar í hópi Framúrskarandi fyrirtækja fjórtánda árið í röð
Sólar hefur enn á ný hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki.
Sólar hefur enn á ný hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki. Þetta er fjórtánda árið í röð sem við hljótum viðurkenninguna og við erum afar stolt af þeim árangri.
Aðeins um 2% íslenskra fyrirtækja uppfylla ströng skilyrði Creditinfo um fjárhagslegan styrk, arðsemi og stöðugleika í rekstri. Að vera í þeim hópi samfellt frá árinu 2013 er árangur sem við tökum ekki sem sjálfsögðum hlut.
Frá stofnun Sólar árið 2002 hefur sú trú verið ríkjandi að fólkið sé undirstaða árangursins. Í dag starfa um 500 starfsmenn hjá Sólar sem sinna fjölbreyttum verkefnum fyrir viðskiptavini um allt land. Starfsmannastefna sem byggir á virðingu, jákvæðri endurgjöf og góðum starfsanda hefur frá upphafi verið ein af meginstoðum fyrirtækisins. Þessi hugsun endurspeglast enn í dag í gildunum okkar virðingu, jákvæðni og fagmennsku sem eru leiðarljós okkar í öllum okkar störfum.
Á bak við þennan árangur liggur gríðarlega mikil vinna, reynsla og metnaður þeirra sem hafa lagt sitt af mörkum til að byggja upp öflugt fyrirtæki og veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu. Viðurkenningin er okkur því mikil hvatning til að halda áfram á sömu braut.
Við þökkum starfsfólki okkar fyrir þeirra mikilvæga framlag og viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir traustið og gott samstarf.



