Event

Golfmót Sólar 2026

Golfmót Sólar var haldið 10. september í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.

Helen Lilja Helgadóttir
September 15, 2026

Golfmót Sólar var haldið þann 10. septembersíðastliðinn í Golfklúbbnum Keili á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Þetta var í þriðja sinn sem Sólar býður viðskiptavinum og birgjum til golfmóts, þar sem leikið er tveggja manna Texas Scramble.

Góð mæting var í mótið. Með okkur í ár voru starfsmenn og fulltrúar frá Stórkaupum, Hrafnistu, JBT Marel, Háskólanum í Reykjavík, PWC, H&S rafverktökum, Lagernum og Efniskaupum.

Það var frábær stemning á vellinum og greinilegt að allir skemmtu sér vel. Að móti loknu var haldið í golfskála Keilis þar sem þátttakendur settust saman yfir góðum mat, spjölluðu og verðlaun voru afhent.

 

Úrslit mótsins:

1.     Helen Lilja Helgadóttir frá Sólar og Eggert Bjarnason frá Efniskaup

2.     Ólafur Eggertsson frá Sólar og Eggert Ólafsson H&S rafverktakar

3.     Hafsteinn Már Einarsson frá Pwc og Elías Kári Huldarsson frá Sólar

Nándarverðlaun og góðgerðarmál:

Nándarverðlaun voru veitt á hverri par 3 holu. Sá sem hlaut nándarverðlaunin fékk að velja góðgerðarmál sem Sólar styrkti. Alls voru fjórar par 3 holur í boði fyrir nándarverðlaun.

Hola 4 – Eggert Ólafsson frá H&S rafverktakar, sló 7,67 metrum frá holu. Ákvað hann að styrkja Börn með Krabbamein.

Hola 6 – Enginn náði nándarverðlaununum á þessari holu, en hópurinn kom sér saman um að styrkja Píeta-samtökin þess í stað.

Hola 12 – Eggert Ólafsson frá H&S rafverktakar, sló 3,37 metrum frá holu og ákvað að styrkja Ljósið.

Hola 17 – Guðríður Hjördís Baldursdóttir frá Lagernum, sló 4,58 metra frá Holu og ákvaðað styrkja Börn með krabbamein.

Að lokum var dregið úr skorkortum þátttakenda og var Gunnar Björgvinsson frá Háskólanum í Reykjavík sá heppni og hlaut útdráttarverðlaunin.

Við hjá Sólar viljum þakka öllum sem gáfusér tíma til að koma og eiga með okkur skemmtilegan dag á golfvellinum. Það var virkilega gaman að sjá hversu góð stemning skapaðist.

Við hlökkum til að taka á móti semflestum aftur á næsta ári!