Persónuverndarstefna
Hér kemur fram hvernig Sólar ehf. safnar, notar, varðveitir og verndar persónuupplýsingar og hvaða réttindi þú átt.
.jpeg)
Um persónuverndarstefnuna
Sólar ehf. leggur áherslu á að persónuupplýsingar séu meðhöndlaðar af ábyrgð og öryggi og í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf á Íslandi á hverjum tíma, þar á meðal lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almenna persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins (GDPR).
Persónuverndarstefna þessi greinir frá því hvernig Sólar ehf., kt. 710102-2360, safnar, notar, varðveitir og miðlar persónuupplýsingum um einstaklinga sem eiga í samskiptum við félagið.
Stefnan nær meðal annars til viðskiptavina og tengiliða þeirra, starfsfólks, umsækjenda um störf, birgja og samstarfsaðila, tengiliða vegna útboða og verðkannana, þátttakenda í viðburðum og annarra einstaklinga sem eiga í samskiptum við Sólar eða nota vefsvæði og rafrænar þjónustuleiðir félagsins. Vísað er í persónuverndarstefnuna af vefsvæði Sólar ehf.
Persónuverndarstefnan er birt á vef Sólar, www.solarehf.is.
Með persónuupplýsingum er átt við hvers kyns upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til tiltekins einstaklings.
Ábyrgðaraðili
Sólar ehf. er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram á vegum félagsins nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Sólar ehf.
Dalshrauni 6
220 Hafnarfirði
Sími: 581 4000
Netfang: solarehf@solarehf.is
Vefsíða: www.solarehf.is
Fyrirspurnum og beiðnum sem varða vinnslu persónuupplýsinga hjá Sólar má beina á framangreint netfang.
Hvaða persónuupplýsingar vinnur Sólar með?
Hvaða persónuupplýsingar Sólar vinnur með fer eftir eðli samskipta við viðkomandi fyrirtæki og tengilið og þeirri þjónustu eða því sambandi sem um ræðir. Sólar leitast við að safna aðeins þeim persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru miðað við tilgang vinnslunnar.
Viðskiptavinir og tengiliðir
Í tengslum við viðskiptasamband vinnur Sólar meðal annars með eftirfarandi upplýsingar:
- Nafn og kennitölu viðskiptavinar.
- Heimilisfang, póstnúmer og stað.
- Nafn tengiliðs.
- Kennitölu tengiliðs.
- Símanúmer og netfang tengiliðs.
- Upplýsingar um prókúruhafa.
- Upplýsingar um verkstaði, þjónustu, samninga og tilboð.
- Upplýsingar um breytingar á þjónustu, uppsagnir og þjónustusögu.
- Ábendingar, kvartanir og hrós.
- Samskipti, svo sem tölvupósta, fyrirspurnir, athugasemdir og önnur samskipti við Sólar.
- Fjárhags- og reikningsupplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna reikningagerðar, greiðslna, innheimtu og bókhalds.
Starfsfólk
Sólar vinnur með upplýsingar um starfsfólk sem nauðsynlegar eru vegna ráðningarsambands og starfsmannahalds, svo sem upplýsingar vegna ráðningarsamninga, launavinnslu, tímaskráningar, starfsstjórnunar og annarra mannauðsmála.
Umsækjendur um störf
Sólar kann að vinna með upplýsingar um umsækjendur, s.s. nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang, símanúmer, upplýsingar um menntun og starfsreynslu og aðrar upplýsingar sem umsækjandi lætur í té í tengslum við starfsumsókn.
Kannanir og þjónustugæði
Sólar vinnur með upplýsingar sem verða til í þjónustu-, viðskiptavina- og starfsánægjukönnunum, ásamt ábendingum og öðrum upplýsingum sem einstaklingar veita í tengslum við slíkar kannanir.
Vefnotkun og tæknilegar upplýsingar
Við notkun vefsvæðis eða rafrænna þjónustuleiða safnar Sólar upplýsingum um notkunina. Má þar nefna IP-tölu, upplýsingar um tæki og vafra ásamt upplýsingum um notkun vefsins.
Hvaðan koma upplýsingarnar?
Persónuupplýsinga er fyrst og fremst aflað beint frá viðkomandi einstaklingi, til dæmis þegar:
- Óskað er eftir tilboði eða þjónustu.
- Haft er samband við Sólar með tölvupósti, síma, vef eða öðrum leiðum.
- Stofnað er til eða unnið innan viðskiptasambands.
- Einstaklingur er skráður tengiliður fyrirtækis eða stofnunar.
- Sótt er um starf hjá Sólar.
- Einstaklingur starfar hjá Sólar.
- Svarað er þjónustu- eða starfsánægjukönnun.
- Skráð er í viðburð, happdrætti eða á póstlista.
Upplýsingar geta jafnframt komið frá fyrirtæki eða stofnun sem viðkomandi starfar fyrir, samstarfsaðilum, opinberum skrám eða öðrum lögmætum heimildum þegar það á við.
Tilgangur með vinnslu persónuupplýsinga
Tilgangur Sólar með söfnun og vinnslu persónuupplýsinga er fyrst og fremst að geta veitt viðskiptavinum þjónustu og staðið við þær skuldbindingar sem leiða af viðskiptasambandi. Í því felst meðal annars að svara fyrirspurnum, útbúa og fylgja eftir tilboðum, gera og halda utan um samninga, skipuleggja og veita þjónustu, halda utan um verkstaði og þjónustusögu og eiga samskipti við viðskiptavini og tengiliði þeirra.
Persónuupplýsingar eru jafnframt unnar vegna reikningagerðar, bókhalds, innheimtu og annarrar fjármálavinnslu, auk þess sem Sólar vinnur þær upplýsingar sem félaginu ber að varðveita eða vinna samkvæmt lögum og reglum.
Tilgangurinn er einnig að upplýsa viðskiptavini og aðra tengiliði um þjónustu Sólar, nýjungar og tilboð, þegar heimild er til þess. Þá eru persónuupplýsingar eftir atvikum notaðar til að senda þjónustu- og ánægjukannanir, vinna úr ábendingum og niðurstöðum þeirra og bæta þjónustu og upplifun viðskiptavina.
Sólar vinnur jafnframt persónuupplýsingar í tengslum við ráðningar og starfsmannahald. Tilgangur þeirrar vinnslu er meðal annars að taka á móti og meta starfsumsóknir, gera og halda utan um ráðningarsamninga, annast launavinnslu og tímaskráningar, skipuleggja störf og mannafla, eiga samskipti við starfsfólk og sinna öðrum skyldum Sólar sem vinnuveitanda. Persónuupplýsingar eru m.a. notaðar vegna starfsánægjukannana og annarra aðgerða sem miða að því að þróa vinnuumhverfi og starfsemi félagsins.
Að lokum kann Sólar að vinna persónuupplýsingar þegar það er nauðsynlegt til að gæta lögmætra hagsmuna félagsins, tryggja öryggi upplýsinga og upplýsingakerfa, uppfylla lagaskyldur eða stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur.
Lagagrundvöllur vinnslu
Vinnsla persónuupplýsinga hjá Sólar byggist eftir atvikum á einum eða fleiri eftirfarandi lagagrundvöllum:
Samningi eða ráðstöfunum að beiðni einstaklings fyrir samningsgerð. Þetta á meðal annars við þegar vinnsla er nauðsynleg til að gera eða efna samning um þjónustu eða ráðningarsamband.
Lagaskyldu. Sólar ber að vinna tilteknar upplýsingar vegna laga og reglna, meðal annars á sviði bókhalds, skatta og launagreiðslna.
Lögmætum hagsmunum. Vinnsla getur verið nauðsynleg vegna lögmætra hagsmuna Sólar eða þriðja aðila, svo sem vegna reksturs, þjónustu við viðskiptavini, gæðaeftirlits, öryggis, innheimtu og þróunar starfseminnar, að því gefnu að hagsmunir eða grundvallarréttindi hins skráða vegi ekki þyngra.
Samþykki. Í þeim tilvikum þar sem vinnsla byggist á samþykki, svo sem eftir atvikum vegna markaðssamskipta eða annarrar valkvæðrar vinnslu, er einstaklingi heimilt að draga samþykki sitt til baka hvenær sem er.
Miðlun persónuupplýsinga
Sólar selur ekki persónuupplýsingar.
Persónuupplýsingum kann að vera miðlað til þjónustuaðila og samstarfsaðila þegar það er nauðsynlegt vegna starfsemi Sólar, svo sem til upplýsingatækni-, hugbúnaðar-, bókhalds-, ráðningar- eða annarra þjónustuaðila.
Upplýsingum kann jafnframt að vera miðlað til opinberra aðila þegar slíkt er skylt samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.
Sólar gerir viðeigandi ráðstafanir til að tryggja öryggi persónuupplýsinga þegar þær eru afhentar öðrum aðilum.
Flutningur persónuupplýsinga utan Evrópska efnahagssvæðisins
Sumir þjónustuaðilar Sólar kunna að vinna eða hýsa upplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).
Þegar persónuupplýsingar eru fluttar utan EES tryggir Sólar, eftir því sem við á, að fullnægjandi heimild og viðeigandi verndarráðstafanir séu til staðar samkvæmt persónuverndarlöggjöf.
Varðveisla persónuupplýsinga
Sólar varðveitir persónuupplýsingar ekki lengur en nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar nema lög eða aðrar skuldbindingar krefjist lengri varðveislu.
Við ákvörðun varðveislutíma er meðal annars tekið mið af eðli upplýsinganna, tilgangi vinnslunnar, gildistíma samninga, fyrningarfrestum, bókhalds- og skattareglum og mögulegum réttarkröfum.
Þegar ekki er lengur þörf á upplýsingum er þeim eytt eða þær gerðar ópersónugreinanlegar eftir því sem við á.
Öryggi persónuupplýsinga
Sólar leggur áherslu á öryggi persónuupplýsinga og gerir viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda þær gegn óheimilum aðgangi, breytingu, miðlun, tapi eða eyðingu.
Aðgangur að persónuupplýsingum er takmarkaður við þá starfsmenn og þjónustuaðila sem þurfa á upplýsingunum að halda vegna starfa sinna og verkefna.
Réttindi einstaklinga
Einstaklingar eiga samkvæmt persónuverndarlöggjöf ýmis réttindi vegna vinnslu persónuupplýsinga um sig. Réttindin fara eftir aðstæðum og lagagrundvelli vinnslunnar.
Þau geta meðal annars falið í sér:
- Rétt til að fá upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga.
- Rétt til aðgangs að eigin persónuupplýsingum.
- Rétt til að fá rangar eða ófullnægjandi upplýsingar leiðréttar.
- Rétt til eyðingar upplýsinga við ákveðnar aðstæður.
- Rétt til að óska eftir takmörkun vinnslu.
- Rétt til að andmæla vinnslu.
- Rétt til gagnaflutnings þegar skilyrði þess eru uppfyllt.
- Rétt til að afturkalla samþykki þegar vinnsla byggist á samþykki.
Beiðnum um að nýta framangreind réttindi má beina til Sólar á netfangið solarehf@solarehf.is.
Sólar kann að óska eftir upplýsingum til að staðfesta auðkenni þess sem leggur fram beiðni áður en hún er afgreidd.
Kvörtun til Persónuverndar
Telji einstaklingur að vinnsla Sólar á persónuupplýsingum um hann sé ekki í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf getur hann haft samband við Sólar.
Einstaklingur á jafnframt rétt á að beina kvörtun til Persónuverndar, sem fer með eftirlit með framkvæmd persónuverndarlöggjafar á Íslandi.
Nánari upplýsingar má finna á vef Persónuverndar, www.personuvernd.is.
Breytingar á persónuverndarstefnunni
Sólar kann að uppfæra persónuverndarstefnu þessa eftir því sem starfsemi félagsins, upplýsingakerfi eða lagaumhverfi breytist.
Gildandi útgáfa stefnunnar er á hverjum tíma birt á vef Sólar.
Síðast uppfært: 4. október 2026.



