Fréttir

Ingunn Margrét Ágústsdóttir tekur við sem framkvæmdastjóri Sólar

Við hjá Sólar erum stolt að tilkynna að Ingunn Margrét Ágústsdóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra félagsins. Ingunn hefur verið hluti af okkar starfi frá árinu 2014 og þekkir starfsemi Sólar út og inn.

Kári Þráinsson
May 19, 2025

Ingunn Margrét Ágústsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sólar og hóf hún störf í apríl 2025. Ingunn tekur við af Einari Hannessyni sem hafði gegnt starfinu síðastliðinn tvö ár.

Ingunn hefur starfað hjá Sólar frá ársbyrjun 2014. Hún leiddi þjónustusvið fyrirtækisins um árabil og hefur því víðtæka reynslu og þekkingu á þjónustu fyrirtækisins við viðskiptavini. Samhliða því að leiða þjónustudeild, stýrði Ingunn einnig mannauðssviði Sólar. Í því hlutverki hafði hún meðal annars umsjón með fræðslumálum og innleiðingu Jafnlaunavottunar. Undanfarin ár hefur Ingunn sinnt hlutverki sviðsstjóra reksturs og mannauðs.

Ingunn er menntuð í guðfræði með meistarapróf í náms- og starfsráðgjöf. Áður en Ingunn hóf störf hjá Sólar starfaði hún hjá Háskóla Íslands.

Við óskum Ingunni til hamingju með nýtt hlutverk og hlökkum til að sjá fyrirtækið vaxa og dafna undir hennar stjórn.